エピソード

  • Þetta er ekkert fyrir konur
    2024/07/26
    Ólympíuleikarnir í París eru strax orðnir sögulegir. Þeir verða nefnilega þeir fyrstu þar sem hlutfall karla og kvenna verður jafnt. Að auki leggur Alþjóða Ólympíunefndin ríka áherslu á það að hafa sem jafnast hlutfall á hverjum degi leikanna þegar kemur að verðlaunagreinum karla og kvenna. En þó svo að þessi mikilvægu skref hafi verið tekin í jafnréttisbaráttunni hefur hún verið löng og ströng.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    29 分
  • Réttindabaráttan á verðlaunapallinum
    2024/07/24
    Alþjóða Ólympíunefndin líður ekki neinn pólitískan áróður eða nokkurs konar mótmæli hjá íþróttafólki á Ólympíuleikum. Einhver frægasta íþróttaljósmynd allra tíma er þó frá Ólympíuleikum og rammpólitísk. Þar steyta bandarísku hlaupararnir Tommie Smith og John Carlos hnefum á verðlaunapalli eftir 200 metra hlaupið í Mexíkóborg árið 1968,íklæddir svörtum hönskum, skólausir, með merki mannréttindahreyfingar á jökkunum.Uppákoman hafði miklar afleiðingar, fyrir Smith og Carlos en , líka Ástralann Peter Norman sem vann silfrið í hlaupinu. Í þessum þætti segjum við sögu „Black power“ mótmælanna.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    29 分
  • Stjarnan sem varð að skúrki
    2024/07/23
    Allt íþróttafólk dreymir um að vinna til verðlauna. Það íþróttafólk sem kemst inn á Ólympíuleika er yfirleitt til í að gera næstum allt til að vinna gullið og standa í efsta þrepi á verðlaunapallinum á fullum leikvangi, með hundruð milljónir sjónvarpsáhorfenda að fylgjast með. En hversu langt er sumt íþróttafólk tilbúið að ganga til að komast í sögubækurnar? Í þessum þætti segir frá falli bandarísku frjálsíþróttakonunnar Marion Jones sem var svipt öllum verðlaunum sínum á ÓL 2000 eftir fræga og vel skipulagða lyfjamisnotkun.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    30 分
  • Frá áhugamennsku til atvinnumennsku
    2024/07/22
    Á Ólympíuleikunum í sumar er nær allt íþróttafólkið sem þar keppir atvinnumenn. Það er hins vegar algjörlega á skjön við upphaflegu hugsjón fyrstu nútíma Ólympíuleikanna árið 1896 og fyrstu áratuganna á eftir. Atvinnumennska, var beinlínis bönnuð. Hvernig þróuðust Ólympíuleikarnir úr þessari áhugamennsku yfir í atvinnumennskuna og hversu hart var tekið á atvinnumönnum hér á árum áður?

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    28 分
  • Glæpurinn gegn náttúrulegu eðli
    2024/07/19
    Guðmundur Sigurjónsson Hofdal kom við sögu á þrennum Ólympíuleikum á 40 ára tímabili. Hann var meðal annars í hópi fyrstu íslensku Ólympíufaranna, var mikill frumkvöðull í íslenskri íþróttahreyfingu og vann þar gott starf. En saga Guðmundar er líka sorgarsaga, því hann er eini maðurinn sem dæmdur hefur verið til fangelsisvistar á Íslandi fyrir samkynhneigð mök. Í þessum þætti er saga Guðmundar glímukappa sögð.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    31 分
  • Lygasaga Mo Farah
    2024/07/17
    Hann var ein allra skærasta stjarnan í heimi frjálsíþróttanna og einn vinsælasti íþróttamaður Bretlands. Fólk hafði líka samúð með ótrúlegri baksögu hans, en árið 2022 kom hins vegar í ljós að hún var haugalygi.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    20 分
  • Brúarsmiðurinn milli austurs og vesturs
    2024/07/16
    Íþróttafólk getur svo sannarlega haft áhrif á heiminn með frammistöðu sinni, afrekum og framkomu. Fáir íþróttamenn hafa þó haft jafn mikil áhrif og sovéska fimleikakonan Olga Korbut með þátttöku sinni á Ólympíuleikunum í München 1972. Korbut hefur verið nefnd sem brúarsmiður milli austurs og vesturs En í hverju fólust áhrif hennar?

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    30 分
  • Ólympíumeistari í íslenskri moldu
    2024/07/15
    Íslendingar hafa unnið bæði til silfur- og bronsverðlauna á Ólympíuleikum, en aldrei gullverðlaun. Samt hvílir einn Ólympíumeistari í íslenskri moldu, og það raunar sögulegur íþróttamaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    24 分